<3
22.10.2007 23:40:39 / Karen..

Ónefnd færsla

 <3<3<3           <3<3<3
<3<3<3<3<3  <3<3<3<3<3
<3<3<3<3<3<3<3<3<3<3<3
<3<3<3<3<3<3<3<3<3<3<3
<3<3<3<3<3<3<3<3<3<3
<3<3<3<3<3<3<3<3<3
<3<3<3<3<3<3<3
<3<3<3<3<3
<3<3<3
<3<3
<3

Hæhæ, mig langaði allt í einu eitthvað svo að blogga :). Þar sem ég er alls ekki að nenna að læra og er ógeðslega mikill tossi. Ég þoli ekki þetta kæruleysi í mér. Þetta gengur ekki sko :o.

Ég fór til Reykjavíkur síðustu helgi, Anna frænka og Oddur voru að gifta sig. Til hamingju<3. Hitti ALLA! vá hvað það var þægilegt að hitta fólkið, ekki smá gaman að hitta Stellu, Helgu, Friðrik & Kalla líka. Þeir 2 komu fljúgandi frá Danmörku :). Brúðkaupið var á laugardaginn og síðan um kvöldið þá vorum við 5 heima að tjilla bara. Aðallega ég, Helga og Stella samt. Síðan þurftum ég og Stella að fara til Hverargerðis með mat til Önnu og Odds þar sem þau gleymdu öllu þannig. Fórum síðan aðeins á rúntinn og síðan heim að sofa :).

ÉG SAKNA GRENIVÍKUR!

Silvía, þú ert búin að smita mig! Ég er farin að fá svona þarftir fyrir einhverjar sérstakar manneskjur :o. Í augnablikinu er ég með þörf fyrir að hitta hana Silvíu mína & sérstaklega að hitta hana Karen Björg <3

ÉG SAKNA ÞÍN KAREN!

Elskaþig<3

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 23:45:59 / Karen..

dautt ?

þessi síða er aaalveg að deyja hjá mér sko :S
gengur eiginlega ekkert sko :/
þannig ég lýsi yfir pásu :)
um óákveðinn tíma!
farið bara inná

www.blog.central.is/fyrsti-e

heitasta síðan í bransanumí dag:D

 -karensif


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 19:56:14 / Karen..

hún á afmæli ;*

:) 
SIGURLÍNA ERLA<3
-
Í dag á ung snót að nafni SIGURLÍNA ERLA <3
þessi unga stelpa er 16 ára í dag og ég skrifa þetta blogg því mig langar að láta ykkur vita mér þykir ekkert smáááá vænt um hana ;*
hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún sigurlínaaaaa
hún á afmæli í dag
hún er 16 ára í dag
hún er 16 ára í dag
hún er 16 ára hún sigurlínaaaa
hún er 16 ára í dag
til hamingju með afmælið sæta <3
þú ert best<33;****
-
-karensif

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 23:14:49 / Karen..

Sumar 2007

guðminngóðurjá :D!

ÉG ÆTLA AÐ BLOGGA :D! öllum til mikillar ánægju ekki satt :)?

ókei, ég er nú búin að brasa hitt og þetta í sumar sko :D man ekkert hverju ég er búin að segja frá og hverju ég er ekki búin að segja frá :P en ætla bara að gera smá lista :D

  • byrjaði að vinna í Vín 2.júní og kynnist þar alveg æðislegum stelpum & jeff ;) frábært að vinna með þeim og allt þar fram eftir ;*
  • síðan í síðustu vikunni í júní fór ég í sumarbústað rétt hjá laugarvatni.. COKE-bústaðinn 8) fór með pabba, agnesbirtu & aronbirkir [ systkini mín ] og svo komu bjössi, hulda, aðalbjörgassa & martabjörg [ frændfólk // bjössi er tvíburabróðir pabba ] og síðan komu erla, gunni, steingrímuringi & friðbjörganna [erla er systir mömmu ]
  • júlí fór nú minnir mig bara mestur í það að vinna ,, geeeeggjað stuð sko 8)
  • 1.ágúst fór ég til DANMERKUR :D með mömmu, manninum sem hún er með, systir hans og fjölskyldu og mömmu þeirra og fjölskyldu! það var geeeðveikt stuð :D byrjuðum í Köben og fórum síðan til germany og síðan til söndeborg og síðan í billund í legolaaaaand <3! þetta var alveg frábær ferð :D takk fyrir allir ;*
  • þegar heim var komið þá var bara að byrja að vinna aftur :]
  • núna er ég hætt að vinna í Vín og byrjuð að vinna í NýjaBíó :D með alveg frábæru fólki líka ;*
  • síðan er skólinn að fara að byrja á mánudaginn næsta! smááá kvíði fyrir því og svona,, en þetta kemur allt hjá manni ;)

jáá, þetta er svona það mesta sem ég gerði í sumar held ég :D auk þess áttu nokkrir afmæli :D

Karen Björg eða Kei Bí varð 14 ára gella :D til hamingju með það elskan <3;*
Unnur Lilja varð 16 ára :D til hamingju með það dúlla <3;*
Hákon Orri & Marinó Þorri urðu 2 ára rúsínur :D<3
ooog ég man ekki eftir fleirum :)

en jáh, þetta er sumarið hjá mér! svo þegar skólinn er byrjaður þá skal ég fara að byrja með þessa síðu aftur.. eða allavegana reyna það ;) fara að setja inn myndir og svona ;]

hey, eitt að lokum :D
ég þakka Silví fyrir að hafa bjargað sumrinu mínu þar sem ég var ein hérna á ak og allir hinir á grenivík :( taakk Silvía mín ;* þú ert frábær ;*

ókei, endum þetta á nokkrum myndum :D
takk fyrir mig og bleeeess <3

vííí sápukúlur :D
í dýragarðinum í Slakka með sætasta hvolp í heimi ;*
vá, bróðir minn er svo sætur :D
MartaBjörg dúlla ;*
FriðbjörgAnna kjútípæ <3
sætisætisæti ;*
töffariiii <3
stelpurnar í 4.flokk tóku þátt í íslandsmótinu og lentu í 5.sæti ;) til hamigju með það sætu ;*
ég í Köben ;)
flottþettakaren
froskuuuuuuuur!
gullkallinn á strikinu
rassmus klumpur ? ekki satt
tekið sérstaklega fyrir pabba - í legolandi
flottasta blóm í heeeeimi<3
og endu þetta á kallinum í fossinum í legolandi ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 12:47:17 / Karen..

blúbb :)

 
haha hönnunarkeppnin :)

ókeeei þá!

eins spurning samt áður en ég byrja!

 



WTF 8|? hvað er eiginlega í gangi :L?

En ókei, eins og flestir kannski sjá þá er ég eiginlega bara búin að vera í pásu  með þessa síðu í vetur :) æi, ég skil mig svosem alveg sko! ekki búin  að gera mikið í sumar nema bara vinna.. jújú ég er búin að fara einu sinni suður í sumarbústað :D og síðan er ég byrjuð í æfingaakstri ;) hööörkudriver sko 8),,
en já, ég skal reyna að vera duglegri í vetur! veit samt ekkert hverju ég nenni sko :) kemur bara í ljós,, er náttúrulega búin að vera með þessa síðu alveg óóótrúlega lengi sko! ekkert smá stolt af mér!
já, ég ætlaði bara að láta vita að ég væri enn á lífi og ekkert mikið og merkilegt að gerast hjá mér :D er bara að fara til Danmerkur á morgun og verð í 2 vikur ,, aaaa ég hlakka svo tiiiil :D

en ég er hætt þessu núna,, nennir einhver að útskýra samt fyrir mér þetta með 115 heimsóknir í dag og ekki einn búinn að kommenta eða skrifa í gestabókina,, djíí :)

-karensifdanmerkurfari ;*


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 23:11:28 / Karen..

comeback ?

Góðan daginn kæru landsmenn nær sem fær :)!

Ég, Karen Sif Stefánsdóttir, er mætt aftur til starfa eftir smá pásu. Ef pásu mætti kalla :).
Það hefur nú ekki mikið á daga mína drifið, nema bara maður er búinn að ljúka grunnskólanum :). Ætli maður eigi eftir að sakna hans eitthvað ? Spurning!
Heyrðu, ég var að komast að því að ég er komin inní Menntaskólann á Akureyriii :D finnst það alveg hreint frábært er ekkert smá ánægð með sjálfa mig :).
En já, síðustu dagar, vikur, hafa nú ekki verið mjög fjölbreittir. Vinna, sofa og éta! Svakalegt stuuuð!
Ég fór í ökutíma í morgun :D., ég er hörkudriver sko 8).
Jáá, ég er að fara til Egilsstaða á mánudaginn þar sem ég er í 3 daga fríi í vinnunni :D, mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Amma, afi, Haukur, Elva, Hákon, Marinó, Agnes, Aron, Grétar, Lísa, Brynjar og Arnar eru þar rétt hjá í sumarbústað og ég ætla að kíkja smá á þau :).
Æii, ég nenni ekki að hafa þetta eitthvað lengra, farin að ná í þvottaklemmu til að setja fyri nefið vegna þess að það er vond lykt sem kemur þegar það er verið að spirna!
17.júní á sunnudaginn :D, Sólveig ætla að hitta þig <3.
Ókei, ég er farin. Myndir að koma því Hjörtur Geir og Júlía eru farin að reka á eftir mér :$.
Skal reyna að vera duuugleg :).
Karen Sif Stefánsdóttir:)!

TinyPic image


 

minn heittelskaði bekkur <3


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 23:55:56 / Karen..

...

FOKK!

ÉG NENNI EKKI AÐ BLOGGA :o!

en þetta fer allt að koma :] nyjar myndir líka ;]


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 21:54:56 / Karen..

taka til smaka til :)


              sykurpúði ;]                                                           haha, ég og valdiskóló (H)               
 
sumir sofnuðu fyrr en aðrir ;]                                               ferskaaaar ;*                             

okeiokeiokei

 ég er ekki að standa mig :$ en allavegana alveg nóg að gera hjá mér :D

Föstudagur og Laugardagur [18.-19.maí]

þá fór ég með félagsmiðstöðinni í sumarbústað í Ytri Vík :D vá, það er sko partýpleis maður 8) marrar svo geðveikt í öllu húsinu að það er ekki normal ;'D
En allavegana, við lögðum að stað frá Grenó sprenó um 4 og þá var ferðinni haldið á Glerártorg :D þar sem 8.bekkur var að gera sig af fíflum :D
[lokaverkefni í heimspeki]
Síðan versluðum við okkur bara nesti og lögðum síðan af stað í Ytri Vík
;D

vá, það var mikið brasað þar! Nenni ekki að segja nánar frá því svo þið fáið það í punktum ;)

heart Grillað

heart Farið í heitapottssundlaugina ;D

heart spilað trivial

heart farði út

heart ekki sofið

heart haft endalaust gaman :D

 þetta var geeeðveik ferð sko :D<3 en eins og ég sagði við fórum í heitapottssundlaugina og svo í gufu og bara haft það næææs :D! ég, karenbjörg og jósa fórum ekki að sofa fyrr en á milli 6-hálf7! ég veit að strákarnir fóru að sofa á eitthvað svipuðum tíma [hjörtur,hákon og bjössi] :D en við 3 sofnuðum allavegana inni hjá strákunm :$ og færðum okkur svo bara fljótlega eftir það :D og ég vaknaði klukkan hálf10! við það að óðinn var eitthvað að strúka á mér hendina ;'D
síðan þegar allir voru vaknaðir var bara farið að taka til og síðan bíða eftir bílnum! og hann náttúrulega gleymdi okkur ;'D en það reddaðist á endaum
;D

TAKK FYRIR ÆÐISLEGAN SÓLAHRING KRAKKAR <33

Sunnudagur [20.maí]

GERÐI NÁKVÆMLEGA EKKERT!!! horfði jú á Las Vegas og lá uppí rúmi :$;*


[elskaþennanþátt]


heitiiii <3

Mánudagur [21.maí]

Skóliiiiiiii víííí! En um 2, eftir að ég var búin að læra VIST[ég sökka í því btw] þá fór ég í bæinn :D og hitti Bjarney og Helgu <3 við vorum bara eitthvað að tjilla :D fór reyndar til að kaupa mér eitthvað, og keypti mér sundföt :D og einn bol :D það er bara ekkert hægt að finna hérna sem ég er ánægð með :o! þarf að fara suður til að fá föt :o! en síðan bara fór ég heim og fór á æfingu og er hérna núna :D

fokk ég þarf að fara að læra í náttúrufræðiii, próf á morgun og ég er ekki búin að opna bók í dag :$ síðan koma myndirnar úr sumarbústaðarferðinni sem fyyyyyrst :D

Fermingar um helgina og Karen og Harpa eru að fara að fermast :D ásamt fleirum, ég reyndar fer bara í fermingu hjá þeim þess vegna sagði ég bara þær :) og ég er búin að kaupa gjööf handa þeim :D nanananabúbú

okei, ég er hætt þessu! farin í sturtu og svo að læra, eða allavegana reyna það :$
p.s. ég er búin að sækja um framhaldsskóla
;D
og nú er bara að bíða og vona


[www.myspace.com/kareensif] adda ;*?  


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 14:53:29 / Karen..

halló!

 \

Hallóó :D

Ég er komin aftur ,, jibbý ,, een breytingar voru ekki eins mikal og ég hélt að þær myndu verða ;P. En allavegna þá eru komin 2 ný video og líka nýtt "um mig" og svo myndirnar náttúrulega sem ég setti rétt áður en ég fór í pásu :D.

EEEEN SAMRÆNDU ERU BÚIN :D! VÁ ÞAÐ ER SVO MIKILL LÉTTIR :D
haha svo kemur bara í ljós hvort maður nær þeim :$

En, í gærkvöldi þá fórum við í 10.bekk á Greifann og í bíó og síðan í sund hérna heima :D það var stuð sko :D tók samt engar myndir ;/ eitthvað smá í Greifanum,, kannski hendi því hingað inn þegar ég nenni :)

Það er víst eitthvað eftir að skólanum [Y] einhver skólapróf og eitthvað,, jeei!
Það er semsagt alveg meira en hellingur nóg að gera hjá manni

  • klára skólann - próf þar og svona
  • Halda uppá afmælið mitt fyrir krakkana? kannski :)
  • myndataka með bekknum ;*
  • sumarbústaðarferð með félagsmiðstöðinni
  • Runólfur (þar er verið að kveðja 10.bekk)
  • Flytjaaa!

Jeb jeb, ég er að fara að flytja á akureyri :) svaka stuð í því, síðan er mamma líka að fara að flytja hérna á Grenivík :D allt að gerast bara!´

Eurovision í kvöld :D kemst Eiríkur áfram? það er spurning! En ég, Helga og Jósa ætlum að horfa á þetta heima hjá Jósu :D kannski ég taki einhverjar myndir :D? aldrei að vita

 Heyrðu ég held að ég sé hætt þessu, komið fínt, farin að gera eitthvað bull og síðan á æfingu [Y]

late píps :D

-karensifstefánsdóttir-


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 00:21:49 / Karen..

pásaaaa!

tíhí :)

heyrðu,,

ég ætla að taka mér pásu fram yfir samrændu :D maður þarf víst að vera duglegur að læra eins og motherfucker :) eeen ég kem sterk til baka einhvertíman í vikunni 11-18 maí :) og þá hef ég vonandi eitthvað skemmtilegt að segja ykkur :)

þangað til þá :)
virðingarfyllst

KarenSifStefánsdóttir

<3


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 08:11:54 / Karen..

afmælisblogg handa mééér ;$

tíhí nú ætla ég að gerast smá egóóó :$ ég á nefnilega afmæli í dag :D

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÉÉÉÉG :D;**

Image and video hosting by TinyPic

Svo þetta sem að María ástin gerði fyrir mig :) takk elskan <3;**

-karensifafmælisbarn<3


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 16:18:09 / Karen..

jeeeb <3

hahaha sexýý
 Já, ætli ég bloggi ekki öllum til mikillar ánægju:)!

Það hefur nú ekki mikið drifið á daga mína sko:).
Fór á samskólaball í Valsárskóla síðasta föstudag,
aaa get nú ekki sagt að þetta hafi verið skemmtilegasta samskólaball sem ég hef farið á sko :).
Það er alltaf langt um skemmtilegast á böllunum hjá okkur af þessum 4!
Ekki allir sammála :$?

                      Helga & ég á ballinu                                                                    Ég lifi í draumi :) 
                           Karen & Sunna ;*                                                                   ojj Sunna :o

Síðan á laugardaginn þá var skauaferð hjá skólanum og maður
skellti sér nú í hana :D, var eins og drottning á svellinu NOT ;´D haha
Síðan um kvöldið þá var söngkeppni framhaldskólanna :D
Helga var svo æðisleg að selja mér miðann sinn ;*
Fór með Sólveig Kristínu <3 og Þórunn vinkonu hennar uppí höll!
Sátum þar hjá einhverju MH-ingum því
Sólveig er í MH og svo hitti ég líka Beggu og Söru og
var eitthvað með þeim :)

              Sunna, Harpa & Katla á skautum                                                   Auður Sif á skautum
Sólveig sæta mín fyrir söngkeppnina ;*

Síðan er ég nú ekki búin að vera að brasa mikið ;P
bara vinna og læra að mestu leiti því
samrænduprófin eru víst aalveg að koma :/!
Þannig það er aalveg miklu meira en
hellingsnóg að gera hjá mér á næstunni [Y]

            hah jósa litli nördinn minn ;*                                                       Óðinn síðan á dragshowinu :]
 
Tónleikar með Stebba & Eyfa :]
Síðan í lok maí þegar skólinn er búinn :),
þá flyt ég í bæinn til pabba og fer bara að vinna á fullu í allt sumar :) 
Heyriði? er þetta ekki komið andskoti nóg hjá mér?
Júú, ég held það sko!
Held bara að ég sé farin að læra í stærðfræði 8)
bææj ;*

Karen SifStefánsdóttir 


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 23:10:34 / Karen..

Jógvan fokkalega bestur <3;*

 
sexý ?

ætla að koma með eitt stútt punktablogg hééérna :D

  • Mín er byrjuð að vinna, fram í Vín!
  • ekki málið að koma og kíkja á mann þegar maður er að vinna og versla sér einn ís eða svona ala karen 8)?
  • Jón Geir "stóri" frændi átti afmæli í gær :D. Til hamingju með það ;*
  • PÁSKAEGG! það má aaalveg fara að borða þau :D
  • JÓGVAN VANN X-FACTOR<3
  • ég þarf að fara að læra!
  • held ég geri það bara núna
  • Palli á sunnudaginn ?
  • á maður að fara ?
  • Skólinn næsta fimmtudag, jeeee [Y]
  • samskólaball næsta föstudag, stemming fyrir því eða ?:D
  • samrændu alveg að koma
  • fokk ég er farin að læra
  • sjitt!

karensifstefánsdóttir;*

nokkar myndir svona í lokin;

4.ára                                          1.árs
mí gó kreisí ;D
prinsessa [A]                                             aw, ég og AnnaMaría<3

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.04.2007 11:26:27 / Karen..

jæja?

Heart 

jáá ? ætli ég bloggi ekki bara :) held það sko!

Síðustu dagar hafa bara verið skóli & læra og eitthvað (Y), en síðan á föstudaginn þá fórum við í páskafrí <3! Gerði nú samt ekki mikið á föstudaginn sjálfan nema taka til 8) haha.. síðan um kvöldið eða um hálf 8 þá var okkur, mér, jósu, bjössa, jóa, óðni jóni geir, hirti, helgu & steinunni, en hún kom ekki, í "afmæli" til hákons eða svo hitting bara:D fengum pizzu, ís & svona :D síðan eitthvað seinna fórum ég, helga, óðinn, jón, bjössi & egil heim til jóns og vorum eitthvað að tjilla þar síðan svona klukkutíma seinna komu jósa, jói & hjörtur líka :D það var alveg geðveikt stuð. Ég, jósa & óðinn fórum ekki heim til mín fyrr en hálf 3 :$ síðan fór óðinn fljótlega frá okkur & ég og jósa fórum að sofa :D.

Já, þetta er eiginlega allt sem er búið að gerast hjá mér í páskafríinu (Y). Neei, reyndar í gærkvöldi komu fjóla, ingólfur, harpa, björn & sigríður edda í mat. Ég & harpa vorum bara eitthvað að tjilla niðri að horfa á nágranna eftir að við vorum búnar að éta. Geðveikt stuð :)
Eftir það svo í gærkvöldi semsagt.. þá hitti ég hana Unni mína <3, vorum bara að labba um og tala saman og svona ;*

heyrðu ég held að þetta sé komið fínt ööömurlega leiðinlegt blogg :´)
allavegana er ég hætt :)

KarenSif <3?


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 00:13:19 / Karen..

...

|| Now playing; Líf - Stebbi Hilmars

|| skap; nokkuð gott samt þreytt og með kvef [Y] 

Góða kvöldið :]

Ég er ekki alveg að standa mig í þessu bloggi hérna :/. Það er nú alveg gild og góð ástæða fyrir því. Það var nefninlega vorskemmtun hjá okkur á fimmtudag og föstudag í síðustu viku og öll vikan fór að meistu leiti í að æfa fyrir hana og svona (:. Við tókum Kardemommubæinn eins og hefur ábyggilega komið fram 1 sinni eða 2 í fyrri bloggum hjá mér (: . Og þar lék ég pylsugerðarmanninn og Kamilu litlu ;D.

Í dag er ég að mestu leiti bara búin að vera uppí Boga að horfa á Aron keppa (; . Ekkert búið að ganga ooof vel sem samt búið að vera stuð að horfa á þá! Standa sig eins og hetjur ;*
Svo um hádegi þá fórum ég og Harpa, sem er búin að vera með mér í allan dag, á Glerártorg og þar hittum við Jósu;*
Síðan voru X-factor krakkarnir að koma og við fórum og fengum áritun [H] .
Síðan var ég geðveikt lengi að reyna að ná góðri mynd handa Karen Björg af Jógvan en veit ekki alveg hvort það hafi tekist ;P.
Ég er eiginlega ekki búin að gera neitt meira í dag ;/, bara búin að vera að gera neitt meira í dag! Er að kálast úr kvefi og hálsbólgu og þreytu!
Kannski ég fari bara að sofa? aldrei að vita
Mynd af Jógvan
Floooottastur ;*
 
Morgundagurinn er bara eitthvað tjill sko, fara og horfa á strákana keppa og verðlaunaafhending. Síðan ætla ég að hitta hana Bjarney mína eitthvað <3!
En ég held ég láti þetta bara duga núna.
Fullt af myndum væntanlegar ;*
Æm át!
KarenSif<3!



» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13